FJÖLNIR GÍSLASON
Ég útskrifaðist frá CISPA (Alþjóðlegi leiklistarskólinn í Kaupmannahöfn) árið 2019. Síðan þá hef ég starfað við bæði leikhús og kvikmyndir, myndbandsgerð, framleiðslu, hlaðvarpsgerð, tónlist og lýsingarhönnun í leikhúsum, bæði hérlendis og erlendis.
Áður lauk ég bæði stúdentsprófi og sveinsprófi í rafvirkjun frá Fjölbrautaskóla Vesturlands árið 2011. Sú tæknilega þekking hefur reynst mér dýrmæt í mörgum af þeim verkefnum sem ég hef sinnt í gegnum tíðina.
Reynsla mín er víðtæk en megináhersla mín hefur verið á myndbandsgerð og eftirvinnslu, ljósmyndun, lýsingarhönnun og hljóðtækni. Ég rek eigið stúdíó við Hlemm þar sem ég hef aðstöðu til for- og eftirvinnslu á bæði video, ljósmyndun, hljóðupptöku og hljóðblöndun.
Sem framleiðandi hef ég komið að uppsetningu nokkurra verka í atvinnuleikhúsum landsins þar á meðal má nefna KANNIBALEN, UNDIR, Jónsmessunæturdraumur, Carmen og það nýjasta er ÚTKALL, heimildarleiksýning upp úr einum vinsælustu bókum íslendinga, sem frumsýnt verður í Hörpu í desember 2026.
Reynslan mín af því að framleiða sýningar sjálfur hefur leitt mig inn í heim markaðsfræðinnar, hvernig maður gerir kynningar, auglýsingar, finna markaðshópinn, samhliða því að dýpka þekkingu mína á tæknilegri hliðinni, að framkvæma og vera skapandi á bakvið myndavélina.
Á þessari síðu hef ég tekið saman allt það sem ég er stoltastur af. Má ég bjóða ykkur að skrolla neðar?